Á morgun kl. 10 verður 41. þing Alþýðusambands Íslands sett. Þingið mun standa yfir í þrjá daga, en það fer fram á Hótel Nordica í Reykjavík. Ellefu fulltrúar frá Einingu-Iðju sitja þingið sem ber að þessu sinni yfirskriftina Samfélag fyrir alla – jöfnuður og jöfn tækifæri. Á þingið mæta tæplega þrjú hundruð fulltrúar launafólks af öllu landinu til að móta heildarsamtökunum stefnu og starfsáætlun og velja þeim forystu. Á þinginu verða tillögur að breytingum á lögum ASÍ teknar til umfjöllunar, skýrsla forseta ASÍ verður kynnt, ályktanir samdar, ásamt fleiri dagskrárliðum.
Seturétt á þingi ASÍ eiga samtals 290 þingfulltrúar og er þeim skipt milli aðildarfélaga með beina aðild og sambanda í hlutfalli við fjölda félagsmanna þeirra. Starfsgreinasambandið mun þ.a.l. eiga 109 fulltrúa á þinginu í ár, sem koma frá 19 aðildarfélögum þess.
Lagt er upp með að á þinginu verði unnið í þremur málstofum. Í tveimur þeirra verði fjallað um hvað þurfi til þess að skapa samfélag fyrir alla, annars vegar hvernig við sköpum verðmætin og hins vegar hvernig við tryggjum velferðina. Í þriðju málstofunni verður til umfjöllunar skipulag og samskipti á vinnumarkaði og hlutverk verkalýðshreyfingarinnar. Unnið verður með „þjóðfundarfyrirkomulagi“ sem tryggir virka þátttöku og möguleika allra fulltrúa á þinginu á að koma að mótun stefnu ASÍ á öllum málefnasviðum sem eru til umfjöllunar. Auk þess sem að framan greinir verður fjallað um skipulagsmál og breytingar á lögum ASÍ.