37 sóttu um starf þjónustufulltrúa og 21 um starf skráningar- og innheimtustjóra

Nýlega auglýsti félagið eftir tveimur öflugum starfsmönnum til starfa á skrifstofu félagsins á Akureyri, þjónustufulltrúa á kjarasviði og skráningar- og innheimtustjóra.

Umsóknarfrestur rann út á miðnætti 15. september sl. og sóttu 37 sóttu um starf þjónustufulltrúa og 21 um starf skráningar- og innheimtustjóra.

Sigríður hjá Mögnum er nú að fara yfir umsóknirnar, en fyrirtækið sér um ráðningarferlið. Stefnt er að því að ganga frá ráðningu á nýjum starfsmönnum fyrir næstu mánaðamót.