34. þing Alþýðusambands Norðurlands

Frá síðasta þingi
Frá síðasta þingi

34. þing Alþýðusambands Norðurlands (AN) fer fram á Illugastöðum í Fnjóskadal dagana 2. og 3. október nk. Alls eiga um 100 fulltrúar rétt á setu á þinginu og þar af á Eining-Iðja rétt á að senda 41. Góðir gestir mæta alltaf á þingið og t.d. mun Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, mæta og fjalla um stöðu og horfur í húsnæðismálum, hagfræðingur frá ASÍ mun fjalla um spurninguna hefur fjölgun erlendra ferðamanna áhrif á vísitölu neysluverðs? og Eyrún Björk Valsdóttir, deildarstjóri fræðsludeildar ASÍ, mun segja frá Genfarskólanum. 

 

Dagskrá þingsins má sjá hér fyrir neðan


Föstudaginn 2. október 2015

09:30 Setning þingsins

Skýrsla stjórnar

Ársreikningar 2013 og 2014

Skipun húsnæðismálanefndar og nefndar um vísitölu neysluverðs.

Skipun kjörbréfanefndar

10:00 Staða og horfur í húsnæðismálum.

Eygló Harðardóttir félags- og húsnæðismálaráðherra

Fyrirspurnir og umræður

10:50 Kaffihlé

11:00 Hefur fjölgun erlendra ferðamanna áhrif á vísitölu neysluverðs?

Hagfræðingur frá ASÍ

11:30 Marínó G. Njálsson master í verkfræði og aðgerðarannsóknum

Fyrirspurnir og umræður

12:10 Hvað er Genfarskólinn?

Eyrún Björk Valsdóttir deildarstjóri fræðsludeildar ASÍ

Fyrirspurnir og umræður

12:40 Hádegisverður (súpa og brauð)

13:00 Umræða um húsnæðismál

13:10 Umræða um vísitölu neysluverðs

13:20 Önnur mál

13:30 Nefndarfundir

15:10 Þeistareykir

Rútuferð þar sem LNS Saga verktakar taka á móti okkur.

20:30 Kvöldverður og kvöldvaka, gaman saman


Laugardaginn 3. október 2015

09:00 Morgunverður

10:00 Afgreiðsla tillagna frá nefndum og stjórn

Afgreiðsla tillagna húsnæðismálanefndar og nefndar um vísitölu neysluverðs

10:45 Fjárhagsáætlun 2015 – 2016

11:00 Breyting á reglugerð fyrir menningar- og fræðslusjóð AN

11:15 Kosningar

11:30 Önnur mál

12:00 Þingslit

Hádegisverður