31,5% hafa miklar áhyggjur af fjárhagslegri stöðu sinni

Undanfarin ár hefur Eining-Iðja fengið Gallup til að gera umfangsmiklar viðhorfs- og kjarakannanir meðal félagsmanna. Þessar kannanir eru sambærilegar könnunum sem nokkur önnur félög innan verkalýðshreyfingarinnar hafa látið gera. Nú liggja fyrir niðurstöður könnunar ársins 2020.

Í könnuninni voru margir þættir kannaðir, m.a. var spurt um fjárhagsstöðu viðkomandi og heilbrigðisþjónustu. 

  • 31,5% segja hafa miklar áhyggjur af fjárhagslegri stöðu sinni. 36,4% segjast hafa engar eða litlar áhyggjur. Miðað við 41,8% og 24,1% í fyrra.
  • Í könnuninn var spurt hvort viðkomandi hefði á sl. 12 mánuðum frestað eða hætt við að fara til læknis, tannlæknis eða kaupa lyf af fjárhagsástæðum.
  • 18,4% hafa frestað eða hætt við læknisheimsókn, sem er minnkun um 6,6%.
  • 13,5% sögðu já er spurt var um lyf sem er minnkun um 4,5%.
  • 31,9% sögðust hafa frestað því eða hætt við að fara til tannlæknis, sem er minnkun um 11,4%. 

Spurt var hvort viðkomandi hefði leitað sér aðstoðar vegna fjárhagslegrar stöðu sinnar á sl. 12 mánuðum og hafa færri leitað sér aðstoðar nú eða 80,7% miðað við 77,7% á árinu 2019. 

Þegar spurt var hvort viðkomandi hefði greitt af einhverjum lánum á síðustu 12 mánuðum sögðust 72,9% hafa greitt af húsnæðislánum (70,5), 37,6% yfirdráttarlánum (45,8), 34% bílalánum (33,1), 27,1% raðgreiðslulánum (32,2), 14,3% af námslánum (19,5), 8,3% af smálánum (10,9) og 2,9% af öðrum lánum (4,8). Tölur í sviga eru tölur síðasta árs.

Þegar aldur er tekinn með í reikninginn þá hafa um 18% félagsmanna á aldrinum 18 til 24 ára og 25 til 34 ára greitt af smálánum á tímabilinu og 7% á aldrinum 35 til 44. ára. 

17% sögðust hafa átt í erfiðleikum með að standa skil á afborgunum af lánum (ekki getað greitt af lánunum) á síðustu 12 mánuðum, miðað við 20,3% árið á undan. Er spurt var af hvernig lánum sögðust 52,1% yfirdráttarlánum, 36,6 % raðgreiðslulánum, 32,4% húsnæðislánum og 18,3% smálánum. 

Niðurstöðurnar eru afar gagnlegar fyrir félagið því markmiðið er alltaf að vinna að sameiginlegum hagsmunamálum félagsmanna, svo sem með því að semja um kaup og kjör og bættan aðbúnað við vinnu. Einnig þarf að gæta þess að áunnin réttindi séu virt.  

Stjórn félagins vill þakka öllum þeim sem þátt tóku í launakönnun félagsins í ár.