Nýlega auglýsti félagið að laust væri til umsóknar starf ráðgjafa á sviði starfsendurhæfingar. Um er að ræða samvinnuverkefni stéttarfélaga á Eyjafjarðarsvæðinu og VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs. Síðasti dagur til að sækja um var í gær og bárust 30 umsóknir. Starfsmenn Capacent eru nú að fara yfir umsóknirnar, en fyrirtækið sér um ráðningarferlið.