Í dag heldur félagið tvo almenna félagsfundi á svæðinu, en alls verða fundirnir fimm í vikunni. Í dag verða fundir í Fjallabyggð kl. 17:00 og á Dalvík kl. 20:00. Á morgun verður fundur í Hrísey kl. 17:00. Fundirnir verða túlkaðir á pólsku. Kaffiveitingar í boði. Félagar, fjölmennum!
- Mánudagur 18. janúar
- *Fjallabyggð: Sameiginlegur fundur fyrir Siglfirðinga og Ólafsfirðinga kl. 17:00 á skrifstofu félagsins Eyrargötu 24b.
- *Dalvík: Safnaðarheimili Dalvíkurkirkju kl. 20:00
- Þriðjudagur 19. janúar
- *Hrísey: Í Hlein kl. 17:00
- Miðvikudagur 20. janúar
- Akureyri: Í salnum á 4. hæð Alþýðuhússins kl. 20:00
- Fimmtudagur 21. janúar
- Grenivík: Gamli barnaskólinn kl. 17:00
Dagskrá*:
- Kjaramál - sérstaklega verður rætt um um stöðu samninga við SA
- Könnun félagsins - helstu niðurstöður
- Önnur mál.
*ATH! Kosnir verða svæðisfulltrúar og varamenn fyrir Dalvík, Hrísey og Siglufjörð.
Kaffiveitingar í boði - Félagar, fjölmennum!