18 fundir með trúnaðarmönnum

Á stjórnarfundi í gær á Illugastöðum  var lagt fram fundaplan með trúnaðarmönnum félagsins, en nýlega var ákveðið að boða alla trúnaðarmenn Einingar-Iðju á fund. Vegna Covid þurfti að skipta þeim niður í hópa og því verða fundirnar, sem verða í október, alls 18. Fyrsti fundur verður 5. október og sá síðasti 29. október, 14 þeirra verða á Akureyri, tveir í Fjallabyggð, einn á Dalvík og einn á Grenivík.

Björn Snæbjörnsson, formaður félagsins, segir að ákveðið hefði verið að fara þessa leið þar sem erfitt er að halda stóra fundi út af ástandinu í þjóðfélaginu. "Undanfarin ár höfum við haldið fjölmarga vinnustaðafundi en vegna Covid hefur það ekki verið hægt. Með þessu náum við að hitta trúnaðarmennina okkar, fá frá þeim upplýsingar um stöðuna á þeirra vinnustað og hvernig við getum betur orðið þeim að liði á þessum tímum. Það er margt í gangi í þjóðfélaginu, eins og kjarasamningamál og aukið atvinnuleysi og því ákváðum við að hugsa aðeins út fyrir kassann og settum upp þetta plan því góð samskipti við trúnaðarmenn skipta öllu máli. Að þessum fundum loknum verður svo tekin saman skýrsla sem lögð verður fyrir stjórn félagsins."

Dagskrá fundanna:

  1. Staðan á hverjum vinnustað.     a) Vinnulega séð?     b) Mórall og andleg líðan?
  2. Samningar og úrvinnsla á þeim.
  3. Hvernig getur félagið orðið ykkur betur að liði?
  4. Vinnustaðaeftirlitið.
  5. Önnur mál.