14 milljarða ávinningur af starfsemi VIRK 2017

14,1 milljarða heildarávinningur var af starfsemi VIRK árið 2017 og ávinningur á hvern útskrifaðan einstakling var 12,6 milljónir króna samkvæmt nýrri skýrslu Talnakönnunar. Bæði heildarávinningurinn og ávinningur samfélagsins af virkni útskrifaðra einstaklinga eykst á milli ára.

Sýnt er fram á í skýrslunni að ábatinn af starfsendurhæfingarþjónustu á vegum VIRK skilar sér til Tryggingastofnunar, lífeyrissjóða og ríkisins í formi aukinna skatttekna. Ofan á þetta kemur svo bættur hagur einstaklinga, bæði fjárhagslegur auk þeirra lífsgæða sem felast í því að geta tekið þátt í samfélaginu.

Skýrsla Talnakönnunar verður meðal umfjöllunarefna á ársfundi VIRK 24. apríl og á 10 ára afmælisráðstefnu VIRK sem haldin verður í Hörpu föstudaginn 4. maí nk.

Sjá nánar í frétt á vef VIRK.

Á Eyjafjarðarsvæðinu starfa fjórir ráðgjafar hjá VIRK starfsendurhæfingarsjóði, þær, Elsa, Helga Þyri, Nicole og Svana. Þær eru starfmenn Einingar-Iðju, en starfa fyrir öll stéttarfélög á svæðinu. Þær eru með aðsetur á skrifstofu félagsins á 2. hæð í Alþýðuhúsinu á Akureyri.