14:38

Því miður er kynbundinn launamunur enn til staðar á Íslandi. Því munu þær frábæru konur sem starfa á skrifstofum félagsins á Akureyri, Dalvík og Fjallabyggð leggja niður störf í mótmælaskyni klukkan 14:38 í dag 24. október. Karlarnir standa að sjálfsögðu vaktina til klukkan 16:00 á skifstofunni á Akureyri, en skrifstofum félagsins á Dalvík og í Fjallabyggð verður lokað kl. 14:38..

Minnum á dagskránna sem hefst kl. 15:00 á Ráðhústorgi á Akureyri í dag. Sjáumst á Torginu.