Vörukarfa ASÍ hefur hækkað um 11% í 10/11 frá því í júní 2015 sem er langtum meira en í öðrum verslunum. Á sama tíma stendur verð vörukörfunnar í stað í Bónus og hefur lækkar í verði hjá Víði um 1,6%.
Frá því í júní í fyrra hefur verð vörukörfunnar hækkað mest eða um 11% hjá 10/11. Hjá Samkaupum-Strax, Iceland og Kaupfélagi Vestur Húnvetninga hækkar karfan um 2-3% á tímabilinu. Hjá Krónunni nemur hækkunin 1,8% og Nettó 1,1% en hjá Hagkaupum, Bónus, Samkaup-Úrval og Kjarval nemur breyting á verði körfunnar innan við 0,5% á milli ára. Mest hefur vörukarfan lækkað hjá Víði um 1,6% frá því í júní í fyrra. Þess má geta að verð á matar- og drykkjarvörum í vísitöluneysluverðs hjá Hagstofunni hækkað um 1,5% frá því í júní 2015 þar til í júní síðastliðnum.
Verðlagseftirlitið mælir breytingar á verði vörukörfu sem gæti endurspeglað almenn innkaup meðalheimilis. Vörukarfa ASÍ inniheldur almennar mat- og drykkjarvörur, t.d. brauðmeti, morgunkorn, pasta, kjöt, fisk, grænmeti, ávexti, pakkavörur, kaffi, gos, safa, auk hreinlætis- og snyrtivara. Við samsetningu vörukörfunnar voru hafðar til hliðsjónar vogir Hagstofunnar sem notaðar eru til útreiknings á vísitölu neysluverðs. Vogirnar segja til um hversu stór hluti tilteknir vöruflokkar eru í neyslukörfu meðalheimilis.
Verðbreytingar eru skoðaðar í eftirfarandi verslunarkeðjum: Í lágvöruverðsverslunum Bónus, Krónunni, Nettó og Iceland og í almennu matvöruverslununum Hagkaupum, Samkaupum-Úrval, Víði og klukkubúðunum, 10-11, Samkaupum-Strax, Kjarval og Kaupfélagi Vestur Húnvetninga.
Þess ber að geta að hér eru einungis birtar upplýsingar um verðbreytingar í verslunarkeðjunum á milli verðmælinga. Ekki er því um beinan verðsamanburð að ræða þ.e.a.s. hvar ódýrustu vörukörfuna var að finna. Einnig er rétt að athuga að skoðuð eru þau verð sem eru í gildi í verslununum á hverjum tíma og geta tilboð á einstaka vöruliðum því haft áhrif á niðurstöðurnar.
Óheimilt er að vitna í niðurstöðurnar í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.