1. maí. Yfirskrift dagsins er Kaupmáttur, atvinna, velferð.


Félagið vill minna á dagskrá í tilefni 1. maí á Akureyri og í Fjallabyggð. Sýnum samstöðu og tökum þátt í hátíðarhöldunum á morgun.

Hátíðarhöld á Akureyri 1. maí 2013
Kröfuganga

  • Kl. 13:30 Göngufólk safnast saman við Alþýðuhúsið
  • kl. 14:00 Lagt af stað við undirleik Lúðrasveitar Akureyrar
  • Happdrættismiðar afhentir göngufólki

Hátíðardagskrá í HOFI að lokinni kröfugöngu

  • Ávarp 1. maínefndar stéttarfélaganna
    • Óskar Þór Vilhjálmsson, fulltrúi SFR stéttarfélags í almannaþjónustu
  • Aðalræða dagsins 
    • Arna Jakobína Björnsdóttir, formaður Kjalar stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu
  • Skemmtidagskrá, kaffiveitingar og dregið í happdrættinu
    • Skralli trúður verður á staðnum og dregur út skemmtilega happdrættisvinninga
    • Leikfélag Dalvíkur flytur atriði úr sýningunni Eyrnalangur og annað fólk
    • Hjalti og Lára Sóley spila og syngja

1. maípennar verða seldir í tilefni dagsins.


Dagskrá 1. maí 2013 í Fjallabyggð

Dagskrá verður í sal félaganna, Eyrargötu 24b Siglufirði frá kl. 15:00 til 17:30

  • Ávarp 1. maínefndar stéttarfélaganna
    • Margrét Jónsdóttir

Kaffiveitingar