1. maí - Tökum þátt í hátíðarhöldunum í dag

Það verður dagskrá í tilefni 1. maí á Akureyri og í Fjallabyggð. Sýnum samstöðu og tökum þátt í hátíðarhöldunum.

Hátíðarhöld stéttarfélaganna á Akureyri 1. maí 2016 - ,,Samstaða í 100 ár – sókn til nýrra sigra!” 

Kröfuganga

  • Kl. 13:30 - Göngufólk safnast saman við Alþýðuhúsið
  • Kl. 14:00 - Lagt af stað við undirleik Lúðrasveitar Akureyrar

Hátíðardagskrá í HOFI að lokinni kröfugöngu

  • Ávarp 1. maínefndar stéttarfélaganna
    • Hildur Sif Sigurjónsdóttir, leikskólakennari og félagsmaður í KÍ 
  • Aðalræða dagsins 
    • Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju og SGS

Skemmtidagskrá

  • Hundur í óskilum verður með brot úr sögu verkalýðshreyfingarinnar
  • Kór Akureyrarkirkju
  • Söngur Borgarasviðsins

Dagskrá 1. maí 2016 í Fjallabyggð

Dagskrá verður í sal félaganna, Eyrargötu 24b Siglufirði frá kl. 14:30 til 17:00

Margrét Jónsdóttir flytur ávarp 1. maínefndar stéttarfélaganna

Kaffiveitingar

Tökum höndum saman og mætum öll