Það verður dagskrá í tilefni 1. maí á Akureyri og í Fjallabyggð. Sýnum samstöðu og tökum þátt í hátíðarhöldunum. ,,Samstaða í 100 ár – sókn til nýrra sigra!”
Hátíðarhöld stéttarfélaganna á Akureyri 1. maí 2016
Kröfuganga
- Kl. 13:30 - Göngufólk safnast saman við Alþýðuhúsið
- Kl. 14:00 - Lagt af stað við undirleik Lúðrasveitar Akureyrar
Hátíðardagskrá í HOFI að lokinni kröfugöngu
- Ávarp 1. maínefndar stéttarfélaganna
- Hildur Sif Sigurjónsdóttir, leikskólakennari og félagsmaður í KÍ
- Aðalræða dagsins
- Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju og SGS
Skemmtidagskrá
- Hundur í óskilum verður með brot úr sögu verkalýðshreyfingarinnar
- Kór Akureyrarkirkju
- Söngur Borgarasviðsins
Kaffiveitingar að lokinni dagskrá
Tökum höndum saman og mætum öll
Dagskrá 1. maí 2016 í Fjallabyggð
Dagskrá verður í sal félaganna, Eyrargötu 24b Siglufirði frá kl. 14:30 til 17:00
Margrét Jónsdóttir flytur ávarp 1. maínefndar stéttarfélaganna
Kaffiveitingar
Tökum höndum saman og mætum öll