Það verður dagskrá á morgun í tilefni 1. maí á Akureyri og í Fjallabyggð. Sýnum samstöðu í verki og tökum þátt í hátíðarhöldunum. Yfirskrift 1. maí í ár er Jöfnum kjörin – samfélag fyrir alla.
Hátíðarhöld á Akureyri 1. maí 2019
Kröfuganga
Kl. 13:30 Göngufólk safnast saman við Alþýðuhúsið
Kl. 14:00 Lagt af stað við undirleik Lúðrasveitar Akureyrar
Hátíðardagskrá í Hofi að lokinni kröfugöngu
Ávarp 1. maínefndar stéttarfélaganna
Jóhann Rúnar Sigurðsson, formaður FMA
Aðalræða dagsins
Drífa Snædal, forseti Alþýðusambands Íslands
Skemmtidagskrá
Örn Smári Jónsson syngur frumsamin lög
Svenni Þór og Stefánía Svavars syngja lög úr myndinni A star is born
Hátíðardagskrá lýkur með sameiginlegum söng á Maístjörnunni undir stjórn Svenna og Stefaníu
Kaffiveitingar að lokinni dagskrá
Dagskrá 1. maí 2019 í Fjallabyggð
Dagskrá verður í sal félaganna, Eyrargötu 24b Siglufirði milli kl. 14:30 og 17:00
Ávarp 1. maínefndar stéttarfélaganna
Kaffiveitingar