VIRK - Auðveldum endurkomu til vinnu!

VIRK Starfsendurhæfingarsjóður fagnar 15 ára afmæli á árinu og í tilefni af því mun VIRK m.a. standa fyrir ráðstefnu í Silfurbergi, Hörpu, miðvikudaginn 31. maí þar sem fókusinn verður settur á endurkomu einstaklinga inn á vinnumarkað eftir veikindi eða slys og hvað fyrirtæki og stofnanir geti gert til þess að auðvelda það ferli.

VIRK er sjálfseignarstofnun stofnuð árið 2008 af helstu samtökum stéttarfélaga og atvinnurekenda á vinnumarkaði. VIRK hefur það hlutverk að efla starfsgetu einstaklinga með heilsubrest sem stefna að aukinni þátttöku á vinnumarkaði.

Boðið verður upp á fjölbreyttan hóp íslenskra og erlendra fyrirlesara á ráðstefnunni, aðalfyrirlesarar verða hinn kanadíski Dr. Emile Tompa og hin hollenska Dr. Sandra Brouwer.

Dr. Tompa er framkvæmdarstjóri rannsóknarmiðstöðvar um stefnumótun í atvinnumálum einstaklinga með skerta starfsgetu (Centre for Research on Work Disability Policy (CRWDP)) sem er þverfaglegt framtak um framtíðarstefnumótun í atvinnumálum í Kanada. Hann er einnig prófessor við hagfræðideild McMaster háskólans í Kanada. Innlegg hans verður um þróun á atvinnutækifærum fyrir einstaklinga með skerta starfsgetu með því að byggja upp getu eftirspurnarhliðar/vinnuveitanda.

Dr. Brouwer er prófessor í vinnulæknisfræði við heilbrigðisvísindadeild Groningen háskólans í Hollandi. Innlegg hennar verður um hlutverk vinnuveitenda í Hollandi í endurkomu til vinnu ferlinu hjá einstaklingum sem hafa verið fjarverandi vegna veikinda.

Ráðstefnan verður sem fyrr segir haldin í Silfurbergi í Hörpu miðvikudaginn 31. maí og mun standa frá 9.00-15.00.

VIRK ráðgjafar í Eyjafirði
Fjórir ráðgjafar eru starfandi fyrir sjúkrasjóði stéttarfélaganna í Eyjafirði; Helga Þyri sem jafnframt er verkefnastjóri á svæðinu, Katla, Kristín og Nicole. Ráðgjafar VIRK eru starfmenn Einingar-Iðju, en starfa fyrir öll stéttarfélög á svæðinu, og hafa aðsetur á skrifstofu félagsins á 2. hæð í Alþýðuhúsinu á Akureyri. Hægt er að ná í ráðgjafana í síma 460 3600. 

  • Nicole er með fasta viðveru á skrifstofu Einingar-Iðju á Dalvík einu sinni í viku.
  • Kristín er með fasta viðveru á skrifstofu Einingar-Iðju í Fjallabyggð einu sinnu í viku.

Ágúst Sigurður Óskarsson starfar sem Atvinnulífstengill hjá VIRK. Hann er starfmaður Framsýnar, en starfar fyrir öll stéttarfélög á Eyjafjarðarsvæðinu. Hann er með aðsetur á skrifstofu FVSA á 3. hæð í Alþýðuhúsinu á Akureyri í einn til tvo daga í viku. Hann er með síma 464 6608 og netfangið virk@framsyn.is