Vert er að minna á að félagsmenn geta séð laus orlofshús og leigt þau á auðveldan hátt á orlofsvef félagsins.
Vetrarleigutímabilið hófst 1. september sl. og stendur til 1. júní 2023. Á þeim tíma eru í boði helgarleigur í orlofshúsum á Illugastöðum, Tjarnargerði, Svignaskarði og Einarsstöðum og vikuleigur í orlofsíbúðum félagsins á Höfuðborgarsvæðinu. Helgarleiga er þrjár nætur, frá fimmtudegi til sunnudags, eða frá föstudegi til mánudags.
Auðveldast er að panta á orlofsvef félagsins, en auðvitað verður hægt að hringja í skrifstofur félagsins á hefðbundnum opnunartíma og panta hús eða bústað.
Athugið að hægt verður að bóka hús á Einarstöðum út september á orlofsvefnum en frá 1. október sér staðarhaldari um útleiguna. Þeir sem áhuga hafa á að leigja hús á Einarsstöðum er bent á að hafa samband við staðarhaldara í síma 861 8310 milli kl. 9 og 16 virka daga eða senda tölvupóst á einarsstaðir@simnet.is, en hann sér um að leigja út hús á tímabilinu 1. október til 1. maí.