Vetrarleiga – opnum fyrir skráningu í dag kl. 12

Klukkan 12 í dag verður opnað fyrir vetrarleigu orlofshúsa og orlofsíbúða félagsins. Vetrarleigan stendur yfir frá 1. september til 1. júní ár hvert. Undanfarin ár hefur vetrinum verið skipt niður í ákveðin tímabil en tekin var sú ákvörðun að hafa allan veturinn undir og ekki þarf lengur að sækja sérstaklega um jól og páska.

Auðveldast er að panta á Félagavefnum, en auðvitað er hægt að hringja í skrifstofur félagsins og panta hús eða bústað.