Verkalýðsskólinn - samstarfsverkefni ASÍ og Háskólans á Bifröst

Á vef ASÍ má finna frétt þar sem fjallað er um Verkalýðsskólann sem er þriggja daga námskeið sem haldið verður á Bifröst dagana 11. til 13. maí 2023. 

Þetta er í annað sinn sem boðið er upp á þetta námskeið en á því verður lögð áhersla á framsögn og örugga tjáningu, sögu verkalýðshreyfingarinnar, réttindi og skyldur á vinnumarkaði, kjarasamninga, fundarstjórn og samningatækni.

Verkalýðsskólinn er opinn öllum en sérstaklega sniðinn að þeim sem hafa áhuga á kjarabaráttu og störfum verkalýðsfélaga, s.s. trúnaðarmönnum, starfsfólki stéttarfélaga og þeim sem koma að kjaraviðræðum.

Námskeiðið hlaut mikið lof þátttakenda á síðasta ári og hvetur ASÍ alla áhugasama til skrá sig. Jafnframt eru þátttakendur hvattir til að kanna rétt sinn á styrk úr sínum fræðslusjóði vegna námskeiðsgjalda. 

Námskeiðið er samstarfsverkefni Háskólans á Bifröst og Alþýðusambands Íslands. Allar nánari upplýsingar og skráning eru hér á vef Bifrastar.