SGS - heimsókn til Noregs og Danmerkur

Fulltrúar aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins hafa verið á ferð um Noreg og Danmörku til að kynna sér kjarasamningsgerð og uppbyggingu verkalýðshreyfingarinnar þar í löndum. Björn formaður, Anna varaformaður og Sigríður formaður Opinberu deila félagsins eru á meðal fulltrúa SGS.

SGS hittu Fällesforbundet i Noregi, sem eru systursamtök SGS og stærstu landssamtök innan norska ASÍ (LO). Þá var haldin kynning á framkvæmd verkfalls starfsfólks í hótel- og veitingagreinum í fyrrasumar sem SGS studdi með ráðum og dáð, auk þess sem farið var yfir verklag  við kjarasamningagerð.

Í Danmörku hitti sendinefndin félaga okkar í 3F sem er stærsta stéttarfélag Danmörku. Þar þáðu Íslendingarnir fræðslu um kjarasamningagerð, vinnulag, laun og önnur réttindi starfsfólks á danska vinnumarkaðinu. Þá var farið sérstaklega yfir muninn á Norðurlöndunum varðandi kaup og kjör. Ljóst er að ferðin hefur verið árangursrík og fulltrúar aðildarfélaga SGS koma betur undirbúin heim undir umræður um framtíðarskipan kjarasamningsmála á Íslandi.