Tölva fyrir félagsmenn í afgreiðslunni á Akureyri

Við hvetjum félagsmenn til að skrá sig inn til að prófa síðuna. Ef þið lendið í vandræðum með innskr…
Við hvetjum félagsmenn til að skrá sig inn til að prófa síðuna. Ef þið lendið í vandræðum með innskráninguna þá er starfsfólk félagsins boðið og búið að aðstoða ykkur. Skoðið vel og lagið ef þarf bankaupplýsingar, símanúmer og netföng.

Við hvetjum félagsmenn til að senda inn rafrænar umsóknir í sjúkrasjóð og fræðslusjóð í gegnum Mínar síður félagsins og senda inn rafrænar umsóknir vegna úthlutunar orlofshúsa og íbúða félagsins næsta sumar sem og Orlofs að eigin vali í gegnum Orlofsvef félagsins, þar sem jafnframt má finna upplýsingar um orlofskosti sem eru í boði.

Vakin er athygli á því að félagsmenn hafa nú aðgang að tölvu í afgreiðslunni á Akureyri þar sem þeir geta sent inn rafrænar umsóknir eða sótt um orlofskosti. Starfsmenn félagsins á Dalvík og í Fjallabyggð eru einnig tillbúnar til að aðstoða þá sem þangað koma að senda inn rafrænar umsóknir til félagsins eða panta eða sækja um orlofskosti félagsins.

Nánar um Mínar síður félagsins