Nýtt fréttabréf ASÍ komið út

Í nýju fréttabréfi ASÍ fjallar forseti Alþýðusambandsins um nýtt samningalíkan við gerð kjarasamninga. Þar er litið til norðurlandanna þar sem virðist ríkja meiri sátt um þessi mál en hér á landi. Einnig er fjallað um verðlagsmál og afnám tolla af fatnaði og skóm. Jafnréttis- og fjölskylduráð ASÍ segir frá ráðstefnu sem er á döfinni og farið er yfir fræðslumál Félagsmálaskólans.

Fréttabréfið má nálgast hér.