Samkvæmt samningnum hækkar fyrsti grunnflokkur um tvo launaflokka og aðrir grunnflokkar um einn launaflokk. Í samningnum er búið að hnykkja á menntunarákvæðum og jafnframt er búið að taka út ákvæði um að starfsmenn geti samtals hækkað um sjö launaflokka vegna starfsaldurs og menntunar. Samningurinn þýðir því tveggja launaflokka hækkun fyrir flest starfsfólk.