Mínar síður fyrir félagsmenn

Á Mínum síðum félagsins geta félagsmenn skráð sig inn og séð ýmsar upplýsingar sem félagið hefur um viðkomandi, séð punktastöðu sína, skoðað og sótt um orlofshús og séð greiðslur frá félaginu. Einnig getur félagsmaður skoðað og sótt rafrænt um  þá styrki sem í boði eru í sjúkrasjóði og í fræðslusjóði.

Við hvetjum félagsmenn til að skrá sig inn til að prófa síðuna. Ef þið lendið í vandræðum með innskráninguna þá er starfsfólk félagsins boðið og búið að aðstoða ykkur. 

Eining-Iðja þarf að hafa réttar bankaupplýsingar til að geta borgað út styrki úr sjóðum félagsins og símanúmer og netfang félagsmanna til að hafa samband ef þörf krefur. Því er mikilvægt að skoða og bæta við eða laga ef þarf þessar upplýsingar á Mínum síðum félagsins. Smelltu á örina efst á síðunni, hægra megin við nafnið þitt. Þá birtist flipi og þar smellir þú á UPPLÝSINGAR.

Til að skrá sig inn þarf að smella á hnappinn Mínar síður sem finna má efst og til hægri á heimasíðu félagsins og skrá sig inn með rafrænum skilríkjum eða Íslykli.

Á mínum síðum geta félagsmenn t.d.:

  • Sótt um styrki
  • Séð stöðu umsókna
  • Uppfært persónuupplýsingar
  • Skoðað áður afgreiddar umsóknir
  • Tekið þátt í ýmsum kosningum og atkvæðagreiðslum hjá félaginu
Félagar! Endilega skráið tölvupóst og síma á MÍNAR SÍÐUR - við viljum geta sent mikilvægar upplýsingar til ykkar!

Til að kanna þínar upplýsingar þá smellir þú á örina niður sem er efst á Mínum síðum, hægra megin við nafnið þitt. Þá birtist flipi og þar smellir þú á UPPLÝSINGAR. Þar sérðu og getur breytt upplýsingum um þig.