Mínar síður fyrir félagsmenn

Nú hefur Eining-Iðja opnað fyrir „Mínar síður“ á heimasíðu félagsins. Þar geta félagsmenn skráð sig inn og séð ýmsar upplýsingar um sig sem félagið hefur, séð punktastöðu sína, skoðað og sótt um orlofshús og séð greiðslur frá félaginu. Einnig getur félagsmaður nú skoðað og sótt um rafrænt þá styrki sem í boði eru í sjúkrasjóði og í fræðslusjóði.

Við hvetjum félagsmenn til að skrá sig inn til að prófa síðuna. Ef þið lendið í vandræðum með innskráninguna þá er starfsfólk félagsins boðið og búið að aðstoða ykkur. Félagsmenn, skoðið vel og lagið ef þarf bankaupplýsingar, símanúmer og netföng.

Til að skrá sig inn þarf að smella á hnappinn „Mínar síður“ sem finna má svo að segja efst og til hægri á heimasíðu félagsins og skrá sig inn með rafrænum skilríkjum eða Íslykli.

Á mínum síðum geta félagsmenn t.d.:

  • Sótt um styrki
  • Séð stöðu umsókna
  • Uppfært persónuupplýsingar
  • Skoðað áður afgreiddar umsóknir
  • Tekið þátt í ýmsum kosningum og atkvæðagreiðslum hjá félaginu
Félagar! Endilega skráið tölvupóst og síma á MÍNAR SÍÐUR - við viljum geta sent mikilvægar upplýsingar til ykkar!

Til að kanna þínar upplýsingar þá smellir þú á örina niður sem er efst á Mínum síðum, hægra megin við nafnið þitt. Þá birtist flipi og þar smellir þú á UPPLÝSINGAR. Þar sérðu og getur breytt upplýsingum um þig.