Menntaskólinn á Akureyri - tveir stofnanasamningar

Mynd af vef MA
Mynd af vef MA

Eining-Iðja hefur skrifað undir tvo nýja stofnanasamninga við Menntaskólann á Akureyri sem gilda  frá 1. maí sl. Annar samningurinn gildir fyrir félagsmenn sem vinna hjá stofnuninni en hinn fyrir þá félagsmenn sem starfa í eldhúsi og þvottahúsi. Samningarnir byggja á kjarasamningi fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs annars vegar og SGS hins vegar frá 1. apríl 2014.

Skv. báðum samningunum hækkar grunntaxti um einn launaflokk, samningana í heild má finna hér.