Lokað á Akureyri 3. og 4. október

Vegna þings Alþýðusambands Norðurlands verður lokað á skrifstofu félagsins á Akureyri fimmtudaginn 3. og föstudaginn 4. október 2024.

Skrifstofur félagsins á Dalvík og í Fjallabyggð verður opnar á hefðbundnum tíma og því verður svarað í síma 460 3600 á milli kl. 9:00 og 16:00 þessa daga.

Við hvetjum félagsmenn til að sækja rafrænt um styrki inn á Mínum síðum Einingar-Iðju, þar má einnig panta og greiða fyrir orlofshús og íbúðir.

Einnig er hægt að senda póst og fyrirspurnir á ein@ein.is