Kynningarfundur um Nordisk Forum

Tími til kominn!

Stærsta jafnréttisráðstefna á Norðurlöndum í 20 ár!

Kvenna- og jafnréttisráðstefnan Nordiskt Forum verður haldin í Svíþjóð 12.-15. júní næstkomandi. Þúsundir femínista, aktívista, umhverfissinna, fræðimanna og byltingarseggja frá öllum Norðurlöndunum og alls staðar að úr heiminum hittast í Malmö og ræða um áskorirnar í jafnréttisbaráttunni og hvað við þurfum að gera til að breyta heiminum.

Kynningarfundur vegna þessarar ráðstefnu verður í Alþýðuhúsinu á Akureyri, Skipagötu 14, 2. hæð, miðvikudaginn 2. apríl kl. 17. Á fundinum verður farið yfir dagskrá ráðstefnunnar, möguleika í flugi og gistingu, styrkjum, og afþreyingu og skemmtanalíf í Malmö og nágrenni.

Léttar veitingar verða í boði!

Bestu kveðjur, og sjáumst sem flest!