Jólablaðið er komið á netið

Jólablað félagsins er komið á netið og má lesa það hér.

Blaðið er farið í prentun og verður borið út miðvikudaginn 14. desember nk. með Dagskránni á öll heimili á félagssvæðinu. Sumir munu reyndar fá blaðið sent til sín með póstinum.

Í blaðinu, sem er 36 síður að stærð, er m.a. stutt spjall við ritara félagsins, Gunna Magg, sem bætti við sig nýjum titli sl. haust. Fjallað er um Mínar síður, sem er nýjung hjá félaginu, endurnýjun á samningi við Nice air sem veitir félagsmönnum afslátt hjá flugfélaginu, ferðir sem verða í boði fyrir félagsmenn á næsta ári, greiðslur úr félagsmannasjóði og margt fleira.

Þá bjóða tveir starfsmenn Striksins lesendum upp á uppskriftir, ný Gallup könnun félagsins kemur einnig við sögu og margt fleira má finna í blaðinu.