Fyrsti viðræðufundur SGS og SA

Fyrr í dag hittust viðræðunefnd Starfsgreinasambandsins og fulltrúar Samtaka atvinnulífsins á sínum fyrsta eiginlega viðræðufundi í kjarasamningsviðræðunum sem framundan eru, en núgildandi kjarasamningur SGS og SA rennur út 1. nóvember næstkomandi. Starfsgreinasambandið afhenti SA kröfugerð sína 22. júní síðastliðin en hún er grundvöllur komandi viðræðna.

Kröfugerðina í heild sinni má sjá hér.

Á fundinum var einnig gengið frá lögbundinni viðræðuáætlun, rætt um fyrirkomulag og fleira. Af hálfu SGS er lögð mikil áhersla á viðræður haldi áfram eins og fljótt og hægt er og að nýr samningur taki beint við af núgildandi samningi sem rennur út 1. nóvember.

Í viðræðunefnd SGS við SA eiga sæti Vilhjálmur Birgisson, formaður SGS og VLFA, Guðbjörg Kristmundsdóttir, varaformaður SGS og formaður VSFK, Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju, og Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, formaður AFLs.