Fundur í Fjallabyggð í kvöld kl. 19:30

Eining-Iðja mun halda fund kl. 19:30 í kvöld á skrifstofu félagsins í Fjallabyggð, en í vikunni verða fjórir almennir fundir á félagssvæðinu þar sem m.a. mun fara fram kosning á svæðisfulltrúum félagsins og varamönnum þeirra. Fundirnir verða túlkaðir á pólsku. Félagar, fjölmennum!

Þriðjudagur 29. janúar

  • Fjallabyggð: Sameiginlegur fundur fyrir Siglfirðinga og Ólafsfirðinga kl. 19:30 á skrifstofu félagsins Eyrargötu 24b.

Dagskrá:

  1. Kosning á svæðisfulltrúa og varamanni.
  2. Staða kjaramála.
  3. Önnur mál. 

Miðvikudagur 30. janúar

  • Grenivík: Á veitingastaðnum Kontórnum kl. 19:30  

Mánudagur 28. janúar

  • Hrísey: Á veitingastaðnum Verbúðin 66 kl. 19:30
  • Dalvík: Í safnaðarheimili Dalvíkurkirkju kl. 19:30
  • Um sameiginlegan fund er að ræða, staðirnir tveir verða tengdir í gegnum netið.