Fulltrúakjör á þing AN og SGS

Á fundi í trúnaðarráði félagsins sem fram fór í kvöld var samþykkt tillaga að lista stjórnar- og trúnaðarráðs um fulltrúa félagsins á þing AN og þing SGS sem fram fara í október. Einnig var samþykkt tillaga að skilafrest á lista og er hún eftirfarandi:

Fulltrúakjör

Samkvæmt lögum Einingar-Iðju fara kosningar fulltrúa félagsins á 5. þing Starfsgreinasambands Íslands og 34. þing Alþýðusambands Norðurlands fram að viðhafðri allsherjaratkvæðagreiðslu í samræmi við reglugerð ASÍ um slíkar kosningar. 

Á 5. þing Starfsgreinasambands Íslands, sem haldið verður í Reykjavík dagana 14.og 15. október nk., hefur félagið rétt á að senda 12 fulltrúa. 

34. þing Alþýðusambands Norðurlands verður haldið á Illugastöðum dagana 2. og 3. október nk. Félagið hefur rétt á að senda 41 fulltrúa á þingið. 

Framboðslistum eða tillögum til 5. þings SGS og 34. þings AN þar sem tilgreind eru nöfn aðalfulltrúa í samræmi við framanskráð og jafn margra til vara, ber að skila á skrifstofu félagsins Skipagötu 14 Akureyri eigi síðar en kl. 12:00 á hádegi fimmtudagsins 17. september nk. 

Hverjum framboðslista skulu fylgja meðmæli 100 fullgildra félagsmanna. 

Akureyri 7. september 2015.
Stjórn Einingar-Iðju