Frítt starfslokanámskeið í næstu viku - síðasti skráningardagur er á morgun

Síðast hélt félagið starfslokanámskeið í febrúar 2020 og var mjög góð þátttaka í því.
Síðast hélt félagið starfslokanámskeið í febrúar 2020 og var mjög góð þátttaka í því.

Vert er að minna aftur á að Eining-Iðja, í samvinnu við SÍMEY, stendur fyrir starfslokanámskeiði fyrir félagsmenn sína í næstu viku. Námskeiðið er ætlað þeim sem nálgast eftirlaunaaldur með það að markmiði að fræða viðkomandi um rétt sinn og leiðbeina við starfslok. Síðast hélt félagið námskeið sem þetta í febrúar 2020. 

Námskeiðið, sem er frítt fyrir félagsmenn, verður haldið dagana 28. og 30. mars 2023. Námskeiðið fer fram í húsnæði SÍMEY á Akureyri, Þórsstíg 4, og stendur yfir milli frá kl. 17:00 til 20:00 báða dagana. 

Síðasti skráningardagur er á morgun, 24. mars. Skráning á námskeiðið

Dagskrá er eftirfarandi