Færi þessi auglýsing fram hjá þér? :)

Trúnaðarmenn Einingar-Iðju eru mikilvægir hlekkir í starfi félagsins. Það kemur fyrir að þeir fái sendar auglýsingar um fundi eða viðburði til að hengja upp á vinnustaðnum. Fyrr í vikunni fengu trúnaðarmenn á almenna markaðinum senda auglýsingu um fimm kynningarfundi um samninginn sem verða í næstu viku.

Fyrr í morgun fékk félagið sendan tölvupóst frá einum trúnaðarmanni félagsins með myndinni sem fylgir fréttinni og eftirfarandi skilaboðum: það ætti enginn á mínum vinnustað að missa af þessari auglýsingu :-)

Sá sem skrifar þessa frétt er algjörlega sammála, þessi staðsetning á henni færi ekki fram hjá honum.

Takið þátt!
Eining-Iðja minni félagsmenn á almenna markaðinum að atkvæðagreiðsla um nýjan samning við SA hefst kl. 12:00 í dag og hvetur ykkur til að taka þátt.