ekkertsvindl.is

Alþýðusamband Íslands stendur í samstarfi við aðildarsamtök sín að verkefni gegn undirboðum á vinnumarkaði og svartri atvinnustarfsemi með yfirskriftinni EINN RÉTTUR – EKKERT SVINDL! Vert er að benda á nýja heimasíðu verkefnisins sem og síðu sem það er með á Facebook.

Besta leiðin til að koma í veg fyrir að svindlað sé á manni er að þekkja réttindi sín og standa fast á þeim. Á heimasíðunni má m.a. finna stutt yfirlit yfir helstu réttindi launafólks sem búið er að berjast fyrir í hundrað ár, stöndum vörð um þau saman. Ef þú ert í vafa um réttindi þín geturðu alltaf leitað til stéttarfélagsins þíns til að fá upplýsingar og ráðgjöf. Við hvetjum alla til að kynna sér verkefnið og senda ábendingu ef grunur leikur á að ekki sé verið virða réttindi vinnandi fólks. Hægt er að senda ábendingu á ein@ein.is eða í síma 460 3600.

MARKMIÐ VERKEFNISINS:

  • Að tryggja kjör og réttindi á íslenskum vinnumarkaði fyrir alla sem hér starfa, þ.m.t. útlendinga sem hingað koma og ungt fólk sem er að hefja þátttöku á vinnumarkaði.
  • Að tryggja starfsemi og eðlilega samkeppnisstöðu fyrirtækja sem virða kjarasamninga og lög og þau viðmið og samskipti sem gilda á íslenskum vinnumarkaði og eru kjölfestan í íslensku atvinnulífi.
  • Að tryggja að sameiginlegir sjóðir samfélagsins fái sitt til að fjármagna m.a. öflugt heilbrigðis-, velferðar- og menntakerfi.

Verkefnið beinist gegn þeim fyrirtækjum sem misnota erlent vinnuafl og ungt fólk og skapa sér þannig samkeppniforskot. Verkefnið beinist ekki gegn erlendum starfsmönnum sem komið hafa hingað til lands í góðri trú.

ÁHERSLA ER LÖGÐ Á:

  • Breytt viðhorf með það að markmiði að landsmenn styðji baráttuna gegn brotastarfsemi á vinnumarkaði með virkum hætti.
  • Að upplýsa erlenda starfsmenn og ungt fólk um réttindi sín og skyldur.
  • Að upplýsa erlend fyrirtæki og aðra atvinnurekendur sem ráða erlenda starfsmenn og ungt fólk um skyldur sem því fylgja.
  • Að upplýsa brot á vinnumarkaði, krefjast úrbóta og koma upplýsingum um meint brot til viðkomandi stjórnvalda og eftirlitsstofnana.
  • Að upplýsa íslenskt launafólk og allan almenning um mikilvægi þess að uppræta undirboð á vinnumarkaði og svarta atvinnustarfsemi.