Aðalfundur félagsins er í kvöld - skrá í rútu fyrir kl. 12

Í dag, fimmtudaginn 6. apríl, fer fram aðalfundur Einingar-Iðju. Fundurinn hefst kl. 19:30 og verður í HOFI á Akureyri. 
Þeir sem ætla að fá far með rútunni sem fer frá Siglufirði og stoppar á hefðbundnum stöðum á leiðinni verða að láta Möggu vita í síma 460 3620 fyrir kl. 12 í dag.

Kaffiveitingar og happdrætti

Félagar fjölmennum!!!

Dagskrá

  1. Venjuleg aðalfundarstörf
  2. Lagabreytingar.
  3. Kosning 38 fulltrúa á ársfund Stapa lífeyrissjóðs
  4. Kosning á aðalmanni í stjórn Stapa lífeyrissjóðs
  5. Önnur mál

ATH! Boðið verður upp á akstur til Akureyrar

  • Siglufjörður, rúta kl. 18:00, frá skrifstofunni Eyrargötu 24b
  • Ólafsfjörður, rúta kl. 18:15, frá Tjarnarborg.
  • Dalvík, rúta kl. 18:30, frá skrifstofunni Hafnarbraut 5.
  • Þeir sem ætla að fá far með rútunni verða að láta vita í síma 460 3620 fyrir kl. 12 fimmtudaginn 6. apríl.

Grenivík, svæðisfulltrúi í síma 844 5729. Hringið fyrir kl. 12, 6. apríl til að sameinast í bíla.

Hrísey, svæðisfulltrúi í síma 692 4910. Hringið fyrir kl. 12, 6. apríl til að sameinast í bíla