Þessa dagana er Gallup að kanna ýmis atriði sem snerta kjör, viðhorf og starfsaðstæður félagsmanna Einingar-Iðju og AFLS starfsgreinafélags. Lokadagur til að svara könnuninni er mánudagurinn 25. nóvember nk.
Könnunin er jafnframt happdrættismiði því allir sem taka þátt geta unnið veglega vinninga. 3.000 félagsmenn voru valdir handahófskennt úr félagaskrám þessara tveggja félaga, 1.500 frá hvoru félagi. Félagið þitt notar niðurstöður könnunarinnar til að móta starfsemi sína og til að berjast fyrir bættum kjörum fyrir félagsmenn.
Könnunin verður send til þessara félagsmanna frá Gallup með tölvupósti eða með SMS. Ef viðkomandi er ekki með netfang skráð hjá félaginu mun Gallup hringja.
Það er von félagsins að þeir sem valdir voru til þátttöku gefi sér tíma til að svara þegar leitað verður til þeirra því það er áríðandi að fá sem nákvæmastar niðurstöður og að allir svari svo hægt verði að nýta niðurstöðurnar í þágu þekkingar og til hagsbóta fyrir félagsmenn. Farið verður með öll svör sem fullkomið trúnaðarmál og mun Gallup annast alla gagnavinnslu og framkvæmd könnunarinnar, sjá nánar um persónuverndarstefnu Gallup inn á www.gallup.is
Niðurstöður fyrri kannana má finna hér
Þátttakendur strax í happdrættispott!
Tuttugu heppnir þátttakendur, 10 frá hvoru félagi, hefa þegar veriið dregnir út og fá gjafakort að andvirði kr. 15.000 fyrir það eitt að svara. Vinningshafar fá tilkynningu um slíkt fljótlega eftir að búið er að svara könnuninni.
Auk þess verða dregnir út átta veglegir vinningar úr innsendum svörum í lok nóvember. Tveir vinningar að upphæð kr. 150.000 og tveir kr. 50.000 auk fjögurra vikudvala í orlofsíbúðum félaganna.
Þín svör skipta máli – takk fyrir að taka þátt!
Með þátttöku þinni hefur þú áhrif á þjónustu og stefnu félagsins. Álit þitt skiptir okkur máli.